Munnheilsa barna sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður – áskorun
2020 (Icelandic)In: Tannlæknablaðið, ISSN 1018-7138, Vol. 38, no 1, p. 88-95Article in journal (Refereed) Published
Abstract [is]
Allir sem vinna með börn ættu að þekkja til Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, en samkvæmt honum ættu öll börn að hafa jafnan rétt til bestu mögulegu heilsu. Þrátt fyrir góða munnheilsu á Norðurlöndunum, sýna rannsóknir að börn, sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður, séu líklegri til að búa við slæma munnheilsu. Forvarnaraðgerðir ná ekki til þeirra, þau nýta sér sjaldnar tannlæknaþjónustu og njóta skertrar tannverndar, samanborið við önnur börn. Af þeim sökum er, auk almennra forvarnaraðgerða, þörf fyrir sérsniðnar aðgerðir fyrir áhættuhópa til að ná til þeirra barna sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Einnig er mikilvægt að fræðslu- og forvarnarstarf hefjist á unga aldri. Þekkingu um áhrif mismunandi aðferða við forvarnir og meðferð skortir og hagfræðilegir útreikningar þeim tengdir eru fáir. Það er mikil áskorun að skrá og meta á kerfisbundinn hátt tanntengdar fræðslu-og forvarnaraðgerðir ætlaðar börnum sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður, svo nýta megi til rannsókna. Þörf er á þverfaglegum rannsóknum með aðkomu tannlæknastofa. Framtíðarsýnin er að jafnrétti til heilsu sé tryggt og að heilsueflandi fræðsla og forvarnir dragi úr ójöfnuði í munnheilsu á milli ólíkra þjóðfélagshópa.
Abstract [en]
Oral Health challenges in children from socially deprived areas
Everyone who works with children should know about the UN Convention on the Rights of the Child, which states that all children should have the same right to highest attainable standard of health. Despite good oral health in the Nordic countries, studies show that children living in socially deprived environments have a greatly increased risk of poor oral health. These children are not reached by preventive measures, they more frequently do not show up for dental appointments and they receive less dental care than others. Therefore, in addition to a more general population based prevention approach, a special high-risk approach is needed to reach children in socially deprived areas. It is also important that the promotion and prevention efforts start from an early age. There are large knowledge gaps regarding the effects of different prevention and treatment strategies, and health economic analyzes are rare. It is a particular challenge to systematically document and evaluate oral health promotion and prevention directed at children in socially vulnerable environments to enable research. There is a need for interdisciplinary research also including clinicians. The vision must be health equity and that both health promotion and preventive measures contribute to closing the oral health gap between different social groups.
Place, publisher, year, edition, pages
The National and University Library of Iceland , 2020. Vol. 38, no 1, p. 88-95
Keywords [en]
Dental services, children, social and financial aspects, oral health, prevention
Keywords [is]
Tannlæknaþjónusta, börn, félags-og fjárhagslegir þættir, munnheilsa, forvarnir
National Category
Odontology
Identifiers
URN: urn:nbn:se:mau:diva-75229DOI: 10.33112/tann.38.1.10OAI: oai:DiVA.org:mau-75229DiVA, id: diva2:1950410
2025-04-072025-04-072025-04-07Bibliographically approved